
Sérstaklega þarf að tryggja öryggi frá Hlégerðis útgangi garðsins, yfir götuna og á gangstéttina andstætt stígnum. Þarna liggur stígurinn beint út á götu þar sem bíla koma (oft ansi hratt) fyrir blindhorn. Að auki mætti merkja gangbraut yfir Hlégerði við bæði gatnamót Borgarholtsbrautar og Hlégerðis sem og yfir Borgarholtsbraut við mót Hlégerðis og Holtagerðis.
Hugsa þarf heildstætt um þetta almenningsavæði og tryggja bætt umferðaröryggi fyrir notendur garðsins.
Hugmynd af íbúafundi: Ath, göngustígur út í Hlégerði liggur út á götuna. Hættulegt. Mikilvægt að virða bann við lausagöngu hunda.
Hugmynd af íbúafundi: Mögulega er hægt að setja upp gangbraut eða þrengingu þar sem göngustígurinn opnast út í Hlégerði.
Væri ekki til bóta að setja grindverk á gangstéttina út við götuna, þannig að ekki sé hægt að fara beint út á götuna, heldur þurfi að taka S beygju til að fara yfir götuna. Svo er þá spurning hvort hentugt sé að hafa gangbraut þar rétt hjá.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation