Árni Páll Árnason, betur þekktur undir listamannanafninu Herra Hnetusmjör, er án efa einn ástsælasti listamaður sem Kópavogur hefur alið af sér ásamt því að vera einn sá vinsælasti meðal þjóðarinnar. Hann setti Kópavog aftur á kortið í tónlistarsenu landsins og hefur ekki sparað bænum þakkirnar síðastliðin 10 ár sem listamaður, m.a. með útgáfu breiðskífanna KÓPBOI og Hetjan úr hverfinu ásamt smáskífunni 203 stjórinn. Nú er tími að þakka honum fyrir sína vinnu með því að reisa styttu í hverfi 203
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation